Filter
Filter ristunin er ljós til að ná fram björtum og tærum bragðeiginleikum kaffisins og hentar vel til uppáhellingar. Margar uppskriftir er hægt að styðjast við þegar kemur að því að hella uppá. Ein þumalputta regla sem SCA (Specialty Coffee Association) hefur mælt með er 55-60gr í einn lítra af vatni. Og svo má benda á það augljósa að ný framleitt kaffi, og malað eftir þörfum rétt áður en hellt er uppá eru nauðsynlegir þættir í því að hella uppá ljúfengan kaffibolla og ná fram bestu gæðum kaffisins.
Hæg uppáhelling, venjuleg kaffivél, pressukanna, Aeropress, V60 eða aðrar uppáhellingaraðferðir.