Skilmálar og Persónuuplýsingar


Skilmálar

Greiðsla

Kaupandi greiðir vöru í heimabanka. Eða í gegnum greiðslusíðu Borgunar.

Eftir að greiðsla hefur borist er hægt að sækja vöru. Nema að samkomulag um annað sé að ræða.

Hægt er að fá sent með Pósti og gildir þá gjaldskrá póstsins. Kaupandi greiðir sendingrkostnað.

Afhending vöru

Allar pantanir eru settar í póst á miðvikudögum. Pantar þarf fyrir 12:00 á þriðjudegi. Kaffibrugghúsið framleiðir kaffið á þriðjudegi svo það sé sem ferskast þegar það kemur til viðskiptavinar.

Pantanir eru sendar með Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Athugið að innanlandspóstur getur tekið allt að 2-4 daga að berast.

Viðskiptavinir bera sjálfur ábyrgð á að gefa upp rétt póstfang eða að vera með rétt merkta póstkassa eða póstlúgur. Ef vara er ekki til á lager munum við hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma eða endurgreiða vöruna.

Vöruskil

Kaupandi hefur 14 daga frá móttöku vöru til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í óupp teknum og upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Kvittun fyrir vörukaupum þarf að fylgja. Að ofangreindum skilyrðum uppfylltum og eftir að varan er móttekin, er gengið frá endurgreiðslu. Sendingarkostnaður er ekki endurgreiddur og kaupandi greiðir sendingargjald þegar vöru er skilað. Ef pakki er ekki sóttur á pósthús áskilur seljandi sér rétt til að halda eftir kostnaði við sendingar.

Vöruverð

Öll vöruverð eru birt með fyrirvara um prentvillur og áskilum við okkur rétt til að hætta við viðskipti hafi rangt verð verið gefið upp.

Vinsamlega athugið að vöruverð getur breyst án fyrirvara. Öll verð eru gefin upp með virðisaukaskatt.

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Varnarþing

Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfu á hendur Kaffibrugghúsið ehf  á grundvelli ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu vísað til meðferðar hjá íslenskum dómstólum.

Annað

Með því að skrá þig á póstlista Kaffibrugghússins  samþykkir þú að fá sendar upplýsingar um nýjar vörur og tilboð. Netföngin eru trúnaðarupplýsingar og eru undir engum kringumstæðum afhent þriðja aðila. Óski viðskiptavinur eftir að vera tekinn af póstlista skal fylgja leiðbeiningunum neðst í emailinu eða senda tölvupóst Kaffibrugghusid@gmail.com

Kaffibrugghúsiið ehf  áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum hvenær sem er.

Persónuuplýsingar

Meðferð persónuupplýsinga

Þegar neytandi verslar vöru(r) í vefverslun Kaffibrugghúsið ehf. þarf að gefa upp kreditkortaupplýsingar og aðrar persónuupplýsingar, þ.e. nafn neytanda, heimilisfang, búsetuland, símanúmer og netfang. Með því að skrá sig í meðlimaklúbb Nespresso á Íslandi í gegnum vefsíðu Kaffibrugghúsið ehf., og kaupum á vöru(m) í vefverslun félagsins samþykkir neytandi slíka söfnun persónulegra upplýsinga.

Þegar neytandi skráir sig á póstlista Kaffibrugghúsið ehf. fer netfang neytanda á póstlista. Hægt er að afskrá sig af póstlista Kaffibrugghúsið ehf. með því að smella á vefslóð í tölvupósti sem sendur er á netfang neytanda.

Kaffibrugghúsið ehf. fer með allar persónuupplýsingar af ýtrustu varúð og sem algjört trúnaðarmál.

Upplýsingar frá neytanda verða ekki afhentar né seldar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Upp geta komið tilvik þar sem Kaffibrugghúsið ehf. þarf á aðstoð þriðja aðila til að veita ákveðna þjónustu. Í slíkum tilvikum getur félagið þurft að deila persónuupplýsingum með þriðja aðila til að það fyrirtæki geti veitt Kaffibrugghúsið ehf., og á endanum neytanda, þjónustu. Má sem dæmi nefna vinnslu á debet- og kreditkortafærslum fyrir Kaffibrugghúsið ehf. Einnig þarf félagið að láta flutningsaðila fá heimilisfang og símanúmer svo að hann geti sent vöru(rnar) heim til neytanda. Kaffibrugghúsið ehf. hefur einnig gert samning við þriðja aðila um skýjaþjónustu en hún er netþjónusta sem gerir félaginu kleift að nota hugbúnað og tæki hjá skýjaþjónustunni. Slík þjónusta felst m.a. í því að varðveita upplýsingar í netþjónum og veflausnum. Slíkir þjónustuaðilar hafa í gildi viðeigandi stefnur og verkferla til að tryggja að upplýsingar sem þeir meðhöndla séu varðveittar með öruggum hætti hverju sinni.

Greiðsluupplýsingar eru ávallt sendar um örugga greiðslusíðu sem hlotið hefur vottun.

Kaffibrugghúsið ehf. takmarkar persónuupplýsingar sem þriðja aðila er veitt og eru slíkar persónuupplýsingar aðeins veittar í þeim tilgangi að veita neytanda slíka þjónustu. Kaffibrugghúsið ehf. veitir slíkum þriðju aðilum strangt eftirlit til að tryggja friðhelgi viðskiptavina sinna.

Öll meðhöndlun persónuupplýsinga þeirra sem neytandi gefur Kaffibrugghúsið ehf. er í samræmi við gildandi lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga eins og þau eru á hverjum tíma. Persónuupplýsingum er fyrst og fremst safnað til þess að hægt sé að versla í vefversluninni og bæta þjónustu við neytanda.

Með því að nota vefsíðu og vefverslun Perroy ehf. veitir neytandi ótvírætt samþykki sitt og  viðurkennir vinnslu og skrá Kaffibrugghúsið ehf. á persónuupplýsingum sínum.

Vafrakökur (e. cookies)

“Cookies“ eða vafrakökur eru upplýsingar sem vefforrit neytanda geymir í tölvu hans að beiðni netþjóna. Kaffibrugghúsið ehf. notar þessar upplýsingar m.a. til að bera kennsl á notandann og vita hversu oft hann heimsækir vefsíðuna/vefverslunina, hvað neytandi setur í körfuna sína, hvernig fyrri pantanir neytanda voru og til að kynna neytanda fyrir vörum sem gætu vakið áhuga.

Vafrakökurnar eru hannaðar til að þjóna þörfum neytanda og notar Kaffibrugghúsið ehf. vefkökur aðallega til að gera vefsíðuna og vefverslunina ánægjulegri í notkun fyrir neytandann og bæta hans upplifun.

Vafrakökurnar eru ýmist notaðar fyrir tilteknar þjónustuleiðir eða til þess að safna tölfræðilegum upplýsingum til að bæta vefsíðu Kaffibrugghúsið ehf. Sumar vafrakökurnar eru tímabundnar og hverfa því þegar notandinn fer af vefsvæðinu en aðrar haldast lengur inni. Viðvarandi vafrakökur vistast á tölvu notandans og muna val og/eða aðgerðir hans á vefsvæðinu og muna því fyrri aðgerðir til að gera notandanum auðveldara fyrir að vafra um vefsvæðið. Að auki eru notaðar staðbundnar vafrakökur sem eru tengdar tilteknum markaðsherferðum og hverfa þegar herferðunum lýkur.

Flestir vafrar eru stilltir þannig að þeir taka sjálfvirkt við vafrakökum en hægt er að stilla þá þannig að neytandi þurfi að samþykkja hvert tilvik. Enda þótt neytandi kjósi að leyfa ekki vafrakökur getur neytandi samt sem áður notað flest alla hluta vefsíðu Kaffibrugghúsið ehf., þar á meðal verslunarkerfið.

Kaffibrugghúsið ehf. notar Google Analytics frá Google og Facebook Pixels til vefmælinga. Við hverja komu inn á vefsvæðið eru ýmsum nafnlausum upplýsingum safnað saman og þær sendar Kaffibrugghúsið ehf., t.d. frá hvaða vefsvæði er komið, tími og dagsetning komu á vefsvæðið, leitarorð sem notað var og gerð vafra og stýrikerfis. Kaffibrugghúsið ehf. notar þessar upplýsingar svo til að gera endurbætur á vefsvæði sínu notendum sínum til hagsbóta. Google Analytics og Facebook Pixels nota sínar eigin kökur en Kaffibrugghúsið ehf. áskilur sér rétt til að birta notendum vefsvæðisins og klúbbmeðlimum auglýsingar í gegnum endurmarkaðssetningarkerfi Google Analytics og Facebook Pixels. Upplýsingarnar eru skráðar með aðstoð vafrakaka og geta þeir sem ekki vilja sjá slíkar auglýsingar slökkt á notkun þeirra.

Með því að nota vefverslun Kaffibrugghúsið ehf. samþykkir neytandi að Kaffibrugghúsið ehf. safni upplýsingum sjálfkrafa með vafrakökum.

Nánari upplýsingar varðandi eyðingu eða stjórn á vafrakökum er að finna á
http://www.aboutcookies.org.uk/. Möguleikar neytanda á notkun vefsíðu Kaffibrugghúsið ehf. gætu takmarkast við slíkar breytingar.

Lög og varnarþing

Skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna skilmála þessa skal það rekið fyrir héraðsdómi Reykjaness. Að öðru leyti en að ofan greinir gilda um skilmála þessa ákvæði gildandi laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga (nú nr. 77/2000), ákvæði laga um neytendasamninga nr. 16/2016, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem neytendur eiga rétt á í lögum um neytendasamninga byrja að líða þegar móttaka vöru hefur átt sér stað.