El Salvador kaffi - Finca Kilimanjaro -Berþurrkað -  Aida Batlle - 1kg
El Salvador kaffi - Finca Kilimanjaro -Berþurrkað -  Aida Batlle - 1kg
El Salvador kaffi - Finca Kilimanjaro -Berþurrkað -  Aida Batlle - 1kg

El Salvador kaffi - Finca Kilimanjaro -Berþurrkað - Aida Batlle - 1kg

Venjulegt verð 13.500 kr
Einingarverð  per 
Skattur innifalinn

Land: El Salvador / Hérað: Santa Ana  Kaffibúgarður: Finca Kilimanjaro / Kaffibóndi: Aida Batlle / Tínsluaðferð: Handtínt / Yrki: Kenía SL-28, SL 34, Bourbon / Vinnsla: Berþurkað/ Þurrkun: skuggaþurrkun á afrískun þurrkpöllum / Uppskerutímabil: 2025 / Hæð yfir sjávarmáli: 1580-1720m 

Kaffisagan: Aida Batlle er 5 kynslóð kaffibænda og rekur 3 kaffibúgarða.  Hún er fyrsta konan til að vinna COE (Cup of Excellence 2003) með kaffi frá Finca Kilimanjaro.  Aida er þekkt fyrir mikla þrautseigju og metnað fyrir sérvaldri kaffiræktun og að upphefja kaffi frá El Salvador. Kaffi frá Aidu hefur verið notað af alþjóðlegum kaffibarþjónum í keppnum með góðum árangri. Við erum ein af fáum kaffibrennslum í Evrópu og Skandinaviu til að bjóða uppá hennar kaffi.

Undanfarin ár höfum við verið með þvegið kaffi frá Kilimanjaro því berþurrkaða kaffið hefur alltaf verið uppselt, en uppskeru árið 2025 settum við nafnið okkar á forpöntunar lista til að eiga möguleika á því að ná í nokkrar baunir af þessari uppskeru.

Bragðlýsingar eru leiðbeinandi og það er ekkert rétt og ekkert rangt þegar kemur að bragði. Þegar við smökkuðum kaffið frá Aidu þá komu þessar bragðlýsingar í hugann: 

Konfekt, mjúkt, dökk ber, mjólkursúkkulaði, fágað, kókos, pínu funk, rjómi, sólber