Comandante Kaffikvörn
Comandante Kaffikvörn
Comandante Kaffikvörn
Comandante Kaffikvörn
Comandante Kaffikvörn
Comandante Kaffikvörn
Comandante Kaffikvörn
Comandante Kaffikvörn

Comandante Kaffikvörn

Venjulegt verð 44.955 kr
Einingarverð  per 

Drottning kaffikvarna er mætt til okkar í Kaffibrugghúsið.

Þessi er lífstíðareign. 

Comandante eru handkvarnir og framleiddar af feðgum í Munic í Þýskalandi. Hnífarnir eru gerðir úr NITRO hertu stáli og mun endast mannsæfi og jafnvel enn lengur. 

Kvörnin er með legum í sveifinni og því er ekkert mál að snúa henni þegar kaffibaunirnar eru malaðar. Ekkert puð við að mala! 

Þessa kvörn er hægt að nota í allt frá Espresso yfir í pressukönnu. Það er auðvelt að flakka á milli stillinga þar sem kvörnin notast við "klikk" kerfi. Það þarf bara að muna að skrá hversu mörg "klikk" við færum í átt að fínni mölun eða grófari mölun og svo er bara að smakka til og njóta. 

Magnaður félagi, heima sem og á ferðalaginu sem hjálpar klárlega til við að halda geðheilsunni í standi.  

 

Í kassanum er að finna:

1 x kvörn

1 x sveif með hnúð og loki

2 x krukkur, ein glær og ein reyklituð

1 x lok á krukku