Aðventu kaffi dagatal 2025

Aðventu kaffi dagatal 2025

Venjulegt verð 14.900 kr
Einingarverð  per 
Skattur innifalinn

Dagatal með fjórum 250g pakkningum af Sérvöldu (specialty coffee) óvissukaffi sem er sérkeypt inn og valið fyrir dagatalið. Dagatalið gleður vit og andlega heilsu sem og eykur á hátíðleika meðan kveikt er á aðventukertinu og geggjað með smákökum  í aðdraganda jólanna. Kaffiunnendur eiga eftir að flippa út að ánægju! 

Pakki númer 1 opnist  og hellist uppá þann fyrsta í aðventu eða sunndaginn 30.nóvember 2025. Pakki númer 2 opnist sunnudaginn 7.desember, pakki númer 3 opnist sunnudaginn 14. desember og sá 4 opnist á sunnudaginn 21.desember. Pakkarnir eru merktir með tölustöfum og blöðungur með upplýsingum um hverra manna kaffið er.

Kaffið verður allt ristað í meðalbrennslu, hugsað fyrir uppáhelling en virkar líka vel sem ljósristað espresso. 

Kaffið er afhent í baunum en ef engin kaffikvörn er á heimilinu getum við malað eftir malað kaffið. Núll mál!

Pantanir á Aðventu kaffi dagatalinu verða afhentar á vikulegri miðvikudagsopnun þann 26.nóvember milli 9-17 og einnig er hægt að fá það sent með póstinum. 

Panta þarf fyrir kl 18.00 þann 22.nóvember 2025