Fræðsla í mynd- og töluðu máli um ræktun og vinnslu á kaffi. Alveg frá því að kaffitréinu er plantað niður, blómstrun, þroskaskeið kaffibersins með innsýn inní kaffibrennslu lífið.
Eftir fræðsluna er verkleg fagsmökkun, þar sem bragð og eiginleikar kaffisins eru ræddir.
Námskeiðið stendur yfir í 2 tíma og er hópnámskeið. Námskeiðið hefur verið aðlagað að breyttum aðstæðum vegna Covid19.
Lengd: 2 tímar
Lágmarksfjöldi: 2 Hámarksfjöldi: 6
Verð: 8250 pr námskeiðsgest
Tímasetningar námskeiða eru auglýstar á Facebook eða samkvæmt samkomulagi.