Aeropress XL er loksins mætt til okkar.
Ótrúlega einföld uppáhellingargræja sem gefur möguleika á því að brugga kaffi á marga mismunandi vegu til að ná fram mismunandi bragðprófíl.
Hefbundna leiðin þarf oftast nær styttri bruggtíma, en lengja má bruggtíman og ná fram kröftugri trekkingu með því að hafa Aeropressuna á hvolfi.
Það er hægt að nota allar tegundir ristunar og mölunar á kaffi í Aeropressuna.
Aeropress XL rúmar allt að 600 ml af vatni. Þú færð helmingi meira kaffi í einu kaffibruggi.
Með Aeropress XL kemur karafla til að brugga í.