Aðventu kaffi dagatal 2026

Aðventu kaffi dagatal 2026

Venjulegt verð 14,900 kr
Einingarverð  per 
Skattur innifalinn

Dagatal með fjórum 250g pakkningum af Sérvöldu (specialty coffee) óvissukaffi sem er sérkeypt inn og valið fyrir dagatalið. Dagatalið gleður vit og andlega heilsu sem og eykur á hátíðleika meðan kveikt er á aðventukertinu og geggjað með smákökum  í aðdraganda jólanna. Kaffiunnendur eiga eftir að flippa út að ánægju! 

Pakki númer 1 opnist  og hellist uppá þann fyrsta í aðventu eða sunndaginn 29.nóvember 2026. Pakki númer 2 opnist sunnudaginn 6.desember, pakki númer 3 opnist sunnudaginn 13. desember og sá 4 opnist á sunnudaginn 20.desember. Pakkarnir eru merktir með tölustöfum.

Kaffið verður allt ristað í meðalbrennslu, hugsað fyrir uppáhelling en virkar líka vel sem ljósristað espresso. 

Kaffið er afhent í baunum en ef engin kaffikvörn er á heimilinu getum við malað kaffið. Núll mál!

Pantanir á Aðventu kaffi dagatalinu verða afhentar á vikulegri miðvikudagsopnun þann 25.nóvember milli 9-17 og einnig er hægt að fá það sent með póstinum. 

Panta þarf fyrir kl 23.59 þann 22.nóvember 2026

Athugið að einungis 80 Aðventudagatöl eru í boði. Fyrstur kemur fyrstur fær.

Ekki fara í Jólaköttinn.