Dagatal með fjórum 250g pakkningum af Sérvöldu óvissukaffi sem er sérkeypt inn og valið fyrir dagatalið. Dagatalið gleður vit og andlega heilsu sem og eykur á hátíðleika meðan kveikt er á aðventukertinu og geggjað með smákökum í aðdraganda jólanna. Kaffiunnendur eiga eftir að flippa út að ánægju!
Pakki númer 1 opnist og hellist uppá þann fyrsta í aðventu eða sunndaginn 1.desember 2024. Pakki númer 2 opnist sunnudaginn 8.desember, pakki númer 3 opnist sunnudaginn 15. desember og sá 4 opnist á sunnudaginn 22.desember. Pakkarnir eru merktir með tölustöfum og blöðungur með upplýsingum um hverra manna kaffið er.
Kaffið verður allt ristað í meðalbrennslu, hugsað fyrir uppáhelling en virkar líka vel sem ljósristað espresso.
Kaffið er afhent í baunum en ef engin kaffikvörn er á heimilinu getum við malað eftir malað kaffið. Núll mál!
Pantanir á Aðventu kaffi dagatalinu verða afhentar á vikulegri miðvikudagsopnun þann 27.nóvember milli 9-17 og einnig er hægt að fá það sent með póstinum.
Panta þarf fyrir kl 18.00 þann 20.nóvember 2024