Land: El Salvador / Hérað: Santa Ana Kaffibúgarður: Finca Kilimanjaro / Kaffibóndi: Aida Batlle / Tínsluaðferð: Handtínt / Yrki: Kenía SL-28, SL 34, Bourbon / Vinnsla: þvegin Búrúndi aðferð, gerjun í 72klukkkustundir/ Þurrkun: skuggaþurrkun á afrískun þurrkpöllum / Uppskerutímabil: 2024 / Hæð yfir sjávarmáli: 1580-1720m
Kaffisagan: Aida Batlle er 5 kynslóð kaffibænda og rekur 3 kaffibúgarða. Hún er fyrsta konan til að vinna COE (Cup of Excellence 2003) með kaffi frá Finca Kilimanjaro. Aida er þekkt fyrir mikla þrautseigju og metnað fyrir sérvaldri kaffiræktun og að upphefja kaffi frá El Salvador. Kaffi frá Aidu hefur verið notað af alþjóðlegum kaffibarþjónum í keppnum með góðum árangri. Við erum ein af fáum kaffibrennslum í Evrópu og Skandinaviu til að bjóða uppá hennar kaffi.