Dagatal með fjórum 250g pakkningum af Sérvöldu óvissukaffi sem er sérkeypt inn og valið fyrir dagatalið. Dagatalið gleður vit og andlega heilsu sem og eykur á hátíðleika meðan kveikt er á aðventukertinu og geggjað með smákökum í aðdraganda jólanna. Kaffiunnendur eiga eftir að flippa!
Pakki númer 1 opnast og hellist uppá þann fyrsta í aðventu eða sunndaginn 3.desember 2023. Pakki númer 2 opnast sunnudaginn 10.desember, pakki númer 3 opnast sunnudaginn 17. desember og sá 4 opnast á sunnudaginn 24.desember. Pakkarnir eru merktir með tölustöfum og blöðungur með upplýsingum um hverra manna kaffið er.
Kaffið verður allt ristað í meðalbrennslu, hugsað fyrir uppáhelling en virkar líka vel sem ljósristað espresso.
Kaffið er afhent í baunum en ef engin kaffikvörn er á heimilinu getum við malað eftir malað kaffið. Núll mál!
Pantanir á Aðventu kaffi dagatalinu verða afhendar/sendar út með póstinum frá kl. 9 að morgni 27.nóvember - og fram til kl. 18 þann 29.nóvember.